6. mars 2026
Lavazza hlýtur silfurverðlaun FÍT 2026
Samstarfsverkefni listakonunnar Maríu Guðjohnsen og ítalska kaffiframleiðandans Lavazza, Rætur og rennsli, hlaut silfurv ...
fljótleg leit
Vinnustaðurinn
Hafa samband
matvara
Samstarfsverkefni listakonunnar Maríu Guðjohnsen og ítalska kaffiframleiðandans Lavazza, Rætur og rennsli, hlaut silfurverðlaun í flokknum Gagnvirk miðlun og upplýsingahönnun á FÍT verðlaununum 2026.
Verðlaunin voru afhent í Grósku föstudaginn 27 febrúar. FÍT verðlaunin eru veitt árlega fyrir framúrskarandi grafíska hönnun og myndlýsingar á Íslandi. Verkin sem hljóta verðlaun og viðurkenningar eru sýnd á sérstakri sýningu sem undanfarin ár hefur verið haldin í tengslum við HönnunarMars.
Í umsögn dómnefndar segir meðal annars:
„Áhugavert samspil milli tví og þrívíðra miðla sem gefur verkinu aukna dýpt. Úr verður mjög fallegur og heillandi sjónheimur.“
Lavazza er afar stolt af viðurkenningunni og samstarfinu við Maríu Guðjohnsen sem sýnir hvernig list, hönnun og kaffi mætast á skapandi hátt.