fljótleg leit

Lavazza og Helena Reynis skapa nýtt verk fyrir HönnunarMars

matvara

6. mars 2026

Lavazza snýr aftur sem samstarfsaðili HönnunarMars 2026

Ítalski kaffiframleiðandinn Lavazza verður aftur samstarfsaðili HönnunarMars sem fer fram dagana 6.-10. maí. Í ár vinnur Lavazza með myndlistarkonunni Helenu Reynis sem skapar nýtt verk sérstaklega fyrir hátíðina.

Helena Reynis byggir verk sín á ljósmyndum sem hún stillir sjálf upp og umbreytir síðan í málverk þar sem ljós, áferð og litablæbrigði draga fram tengsl hluta, rýmis og augnablika. Hún hefur haldið fjölda sýninga víða um heim en þetta er í fyrsta sinn sem kaffi er aðalviðfangsefni í verkum hennar.

Lavazza var stofnað í Torínó á Ítalíu árið 1895 og er í dag einn helsti kaffiframleiðandi heims. Fyrirtækið er þekkt fyrir hágæða kaffiblöndur, samfélagslega ábyrgð og stuðning við listir, íþróttir og kaffibændur. Lavazza hefur lengi átt náin tengsl við listheiminn og unnið með listamönnum á borð við Helmut Newton, Annie Leibovitz og David LaChapelle auk samstarfs við stofnanir eins og Guggenheim safnið í New York og Triennale í Mílanó.

Árið 2025 var María Guðjohnsen listamaður Lavazza á Íslandi og skapaði verkið Rætur og rennsli sem hefur prýtt gaflinn á Laugavegi 3 síðastliðið ár. Með samstarfi sínu við listamenn vill Lavazza styðja við skapandi greinar og halda áfram áratugalangri tengingu sinni við listir.

Í ár túlkar Helena Reynis þema HönnunarMars 2026, Tengingar, í verkinu Milli sopa. Þar fangar hún augnablik yfir kaffibolla þar sem fólk hittist, samtöl kvikna og tengsl myndast.

Verkið verður útfært sem vegglistaverk á gafli Laugavegs 3 við Skólavörðustíg og verður afhjúpað fimmtudaginn 7 maí.

Fylgstu með Lavazza á Íslandi á Instagram @lavazzaiceland til að sjá meira frá samstarfinu og undirbúningi fyrir HönnunarMars.