fljótleg leit

Vistró kynnti nýtt nafn á Stóreldhússýningunni 2026

stóreldhús

10. nóvember 2026

Stóreldhúsið 2026 í Laugardalshöll markaði nýtt upphaf hjá Stóreldhússviði Danól. Þar kynntum við nýtt nafn og nýja ásýnd stóreldhússviðsins fyrir viðskiptavinum, samstarfsaðilum og öðrum gestum.

Það var ánægjulegt að hitta svo marga úr fageldhúsum landsins, segja frá Vistró og ræða þarfir og tækifæri í greininni. Sýningin skapaði góðan vettvang til að kynna vöruúrval og þjónustu, hitta gamla viðskiptavini og kynnast nýjum.

Vistró byggir á áratuga reynslu og traustum grunni Danól. Með nýju vörumerki fær stóreldhússviðið skýrari sérstöðu og öflugan vettvang til að þróa þjónustuna áfram. Áherslur okkar eru fagþekking, gæði, leikgleði og áreiðanleiki - og öflugt samstarf við viðskiptavini.

Við þökkum öllum sem heimsóttu okkur á sýningunni.

Gallery Image
Gallery Image
Gallery Image
Gallery Image