fljótleg leit

Um Danól

Danól selur matvæli og sérvöru af ýmsum toga. Áhersla er lögð á að vörur fyrirtækisins séu fyrsta flokks og að viðskiptavinir þess geti gengið að hágæða þjónustu vísri. Aðeins vörur sem Danól telur eiga þess kost að vera með þeim fremstu í sínum flokki eru settar á markað.

Stöðugt er leitað nýrra leiða til að efla starfsemina og ná fram meiri framleiðni með því að gera hlutina betur og fyrr en aðrir. Þetta er gert til hagsbóta fyrir viðskiptavini okkar, neytendur, starfsfólk og eigendur.

Danól er skipt upp í þrjár einingar sem hver um sig sér um sitt afmarkaða svið. Sviðin eru matvara, stóreldhús, og snyrti- og sérvara. Í hverri einingu fyrir sig starfar fagfólk og viðskiptavinir geta treyst á bæði reynslu og fagmennsku starfsfólks, yfirgripsmikla þekkingu á vörunum okkar sem og afburða þjónustu.

Danól hefur verið starfandi frá árinu 1932, að undanskildu tímabilinu 2006-2015 sameinuð Ölgerðinni.

Skoða gildin okkar

Stóreldhús

Stóreldhús leggur sig fram við að bjóða upp á heildstæðar lausnir í hinum ýmsu matvælum og aðföngum sem snúa að rekstri í matvælageiranum.

Bakarí, hótel, kaffihús, veitingahús, stóreldhús og matvælaiðnaðurinn treysta á vörur og þjónustu Danól á þessu sviði. Reynsla, fagmennska og þekking eru einkennisorð sviðsins.

Matvara

Danól er ein fremsta heildsala landsins með mat- og sérvörur fyrir stórmarkaði og verslanir. Allt frá upphafi hefur verið lögð mikil rækt við að tryggja að þau vörumerki sem hafa verið tekin inn til sölu, séu þau fremstu á sínu sviði. Mikil áhersla er lögð á að framleiðendur uppfylli allar reglur varðandi framleiðsluferli og matvælaöryggi.

Snyrti- og sérvara

Danól er ein stærsta heildsala landsins á snyrti- og sérvörumarkaði. Snyrti- og sérvörudeild Danól hefur umboð með vörumerkjum sem eru þekkt fyrir framúrskarandi gæði, mikla vöruþróun og góða virkni.

Kaffiþjónusta

Við bjóðum upp á sérsniðnar heildarlausnir í kaffiþjónustu fyrir fyrirtæki, hótel og veitingahús af öllum stærðum og gerðum. Einn tengiliður sér um alla þjónustu við hvert fyrirtæki fyrir sig og er hægt að velja um gæðakaffi frá vörumerkjum í heimsklassa, Lavazza og Merrild.