fljótleg leit

Danól er dótturfyrirtæki Beru og starfar í samræmi við sjálfbærni- og umbreytingarstefnu Beru.

Við höfum mikinn metnað á sviði sjálfbærni og erum markvisst að innleiða sjálfbærni í menningu fyrirtækisins. Til að ná framtíðarsýn fyrirtækisins um að verða fyrsta val viðskiptavina og neytenda þarf að huga að sjálfbærni í allri virðiskeðjunni. Okkar viðskiptavinir og neytendur gera kröfu um að versla við fyrirtæki sem stuðla að sjálfbærni og þau fyrirtæki búa yfir og viðhalda hæfari starfsfólki.

Við ætlum að vera í framvarðasveit íslenskra fyrirtækja á sviði sjálfbærni og mæta nútímaþörfum viðskiptavina og neytenda okkar, án þess að skerða möguleika komandi kynslóða á að mæta þörfum sínum. Framtíðarsýn fyrirtækisins verður náð með því að leggja áherslu á fjóra strauma: sjálfbærni, vöxt, stafræna þróun og fjölbreytileika. Þannig sköpum við virði fyrir alla okkar hagaðila og verðmætasköpun til framtíðar.

Danól er dótturfyrirtæki Beru og starfar í samræmi við sömu sjálfbærnistefnu og móðurfélagið.

Áherslur

Áherslur í sjálfbærni

Við nýtum umbætur til að draga úr sóun, bæta rekstur og þjónustu og minnka kolefnisspor. Við byggjum upp rekstur þar sem umbætur og sjálfbærni fara saman, það að gera hlutina betur sé jafnframt að gera þá sjálfbærari.

Dregið úr matarsóun í vefverslun

Eitt af markmiðum Danól er að minnka matarsóun.

Á forsíðu vefverslunar Danól er vakin sérstök athygli á tilboðsvörum. Til að draga úr sóun og hámarka nýtingu birgða eru vörur settar á tilboð með það að markmiði að selja vöruna áður en gildistími rennur út í stað þess að senda í förgun.

Á árinu 2025 voru 20.186 einingar seldar á sértilboði, sem samsvarar 115 tonnum.

Endurvinnsla kaffihylkja

Ölgerðin og Danól eru forsprakkar forendurvinnslu kaffihylkja á Íslandi og standa straum af kostnaði endurvinnslunnar. 
Árið 2023 var sett upp söfnun og endurvinnsla kaffihylkja sem er með umhverfi svænni hætti en áður hefur þekkst hér á Íslandi. Hægt er að skila notuðum kaffihylkjum á 19 söfnunarstöðvar víða um land. 
Kaffihylkin eru forunnin hjá Íslenska Gámafélaginu þar sem þau eru hökkuð og kaffikorgurinn sigtaður frá. Kaffikorgurinn fer í jarð- og gasgerðarstöð GAJU og verður þar að áburði en leitað er leiða til að nýta kaffikorginn á fleiri máta. Málmurinn fer í málmendurvinnslu.
Nánari upplýsingar um verkefnið, söfnunarstöðvar og endurvinnsluferli kaffihylkja má finna á kaffihylki.is.

Áfyllingar í snyrtivöru

Hjá Danól finnur þú frábært úrval af snyrtivörum frá fremstu vörumerkjum heims. Við bjóðum upp á gæðavörur sem henta fyrir öll þau sem vilja dekra við sig og njóta gæðanna.

Prada, Mugler, Lancome, YSL, Armani, Kiehl‘s, Elvital og La Roche Posay eru meðal þeirra vörumerkja sem hafa lagt sérstaka áherslu á áfyllanlegar snyrtivörur, þar sem fallegar og vandaðar umbúðir fá lengri líftíma.

MILT

MILT vörurnar eru sérstaklega framleiddar fyrir íslenskt vatn.

MILT þvottaefnið er án ofnæmisvaldandi efna eins og ilm- og litarefna.

MILT þvottaefnið hefur verið þróað til að draga úr líkum á ofnæmisviðbrögðum en er með Svansvottun og með bláa kransinn frá dönsku Astma- og ofnæmissamtökunum.