fljótleg leit

bollur

Vatnsdeig

  • 210 g Smjör
  • 376 g Vatn
  • 220 g Hveiti (900436)
  • 255 g Egg (593050)

Samtals 1063gr

Aðferð

Smjör og vatn er hitað saman í potti og soðið vel. Hveiti síðan bætt við og því öllu hrært vel og lengi saman. Svo er blandan sett í vél og unnið á miðlungs hraða á meðan deigið kælir sig niður. Þegar blandan hefur kólnað er eggjunum bætt við hægt og rólega.

Hrærið deigið með spaða þar til það er eins og silki og hefur fengið smá glans

Sprautið á slétta plötu með engum pappír eða fitu og bakið í ofni á 230° gráðum í 2 mín. Lækka svo í 200° gráður í 10 mín. Bakið í heildina 20 til 25 mín.

Deigþyngd: 30 g per bolla og 5 g craquelin deig.

Craquelin deig:

  • 40 g DreiDoppel jarðaberja paste (101956)
  • 4 g Rauður matarlitur
  • 500 g Flórsykur (950031)
  • 550 g Hveiti (960906)
  • 500 g Kalt smjör

Samtals 1594gr

Vinnslutími:

Keyrt saman með krók í 1 mín og sett inn í kæli.

Hvíltími: 30 min í kæli.

Aðferð:

Eftir að deigið er kælt er því deigið rúllað niður í 3 mm í rúlluvél. Stungið síðan út með 5 cm hringi. Sprautið vatnsdeiginu á bökunarpappír. Craquelin hringurinn er settur ofan á óbökuðu bollurnar þannig að þær hylji yfirborðið og síðan eru þær bakaðar. Eftir að bollurnar eru búnar að kólna eru þær fylltar með rjóma og ferskum jarðarberjum í miðjunni. Skreytt með hjörtum og burstað með bleiku glimmeri.

Baksturstími: 170 – 180 °C

Baksturstími: 25 – 30 min.

Fylling:

Þeyttur rjómi bragðbættur með DreiDoppel jarðaberja paste, 50 g pr kg.

Ástin er í loftinu.. og í bollunni