fljótleg leit

konfekt

20 kúlur

Innihald

  • 400 g Original ODENSE Marsípan
  • 4 msk. Baileys
  • 200 g Daim
  • 400 g ODENSE ljóst súkkulaði

Leiðbeiningar

Uppskriftin hér er frá marsípanaðdáendakeppninni okkar. Stine elskar heimagerðar kökur, eftirrétti og konfekt í háum gæðaflokki. Þess vegna hefur hún séð um jólakonfektgerðina í fjölskyldunni, þar sem hún hefur bæði gert tilraunir með gæði og hráefni. Baileyskúlurnar með kurli eru nú – skiljanlega – orðnar ómissandi hluti af jólakonfektinu.

Byrjið á því að saxa Daimsúkkulaðið gróft.
Hnoðið Baileysinu inn í marsípanið smám saman. Smakkið til hvort e.t.v. mætti bæta í það meira  Baileys. Hellið helmingnum af Daiminu í marsípanmassann og hnoðið saman.  Rúllið marsípanmassanum í litlar kúlur og geymið í kæli í  15 mín.
Bræðið ljósa súkkulaðið yfir vatnsbaði og dýfið kúlunum í. Leggið kúlurnar á bökunarpappír og stráið restinni af Daiminu yfir kúlurnar.  Kúlurnar eru síðan kældar. Þegar súkkulaðið er storknað er það tilbúið – njótið vel!