fljótleg leit

matvara

Innihald

  • 140 g smjör
  • 350 g sykur
  • 30 g kakó
  • 2 egg
  • 2 tsk. salt
  • 2 ½ tsk. matarsódi
  • 2 ½ tsk. lyftiduft
  • 3 tsk. vanillusykur
  • 330 g hveiti
  • 1 dl súrmjólk
  • 2 dl heitt kakó (Guðrúnu finnst best að nota KitKat dolce
  • gusto-kakóið)

Smjörkrem

  • 825 g flórsykur
  • 300 g smjör
  • 300 g smjörlíki
  • 100 g kakó

Aðferð

Setjið allt hráefnið saman í skál og blandið vel saman þar til fallegt krem verður til.

Fylling

  • 2 bakkar fersk hindber
  • 5-6 stk. Lion bar (eða þitt uppáhaldssúkkulaðistykki)
  • 1 bolli heitt kakó, til að bleyta botninn og fá hann extra safaríkan

Aðferð

  1. Byrjið á því að hita bakarofninn í 180°C hita.
  2. Takið síðan hrærivélarskál og byrjið að útbúa botninn.
  3. Þeytið saman sykur og smjör þar til það er létt og ljóst.
  4. Bætið síðan einu og einu eggi út í, munið að skafa niður hliðarnar á milli.
  5. Blandið síðan öllum þurrefnunum saman og bætið út í.
  6. Setjið að lokum súrmjólkina og kakóið út í blönduna.
  7. Smyrjið hringlaga form og hellið deiginu í.
  8. Setjið formið inn í ofn og bakið við 180°C hita í 35-40 mínútur eða þar til þú getur stungið eldhúshníf eða kökuprjón í kökuna og ekkert kökudeig loðir við prjóninn.
  9. Takið kökuna út og leyfið henni að kólna.
  10. Skerið hana í tvennt og bleytið báða hlutana með heitu kakói.
  11. Lagið síðan smjörkremið og undirbúið hráefnið fyrir fyllinguna, sjá lýsingu fyrir neðan.
  12. Sprautið lagi af smjörkremi á kantinn að neðri botninum.
  13. Skerið Lion bar og hindberin í bita og setjið á botninn.
  14. Sprautið smjörkremi yfir og setjið síðan hinn botninn ofan á. Smyrjið þunnu lagi síðan yfir kökuna og leyfið henni að vera í kæli yfir nóttu.
  15. Skreytið kökuna daginn eftir eins og ykkur finnst fallegast. Hægt er að skreyta hana í því litaþema sem verður í veislunni.
  16. Berið fram kökuna við stofuhita og njótið vel.