Flank steak Broken Taco
mexican
Fyrir tvo
Kjöt
- 300–400 g flank steak
- Salt og pipar
- Olía til steikingar
Mangósalsa
- 1 mangó
- 1 avókadó
- ¼ rauðlaukur
- ½ dl kóríander
- Safi úr ½ límónu
Til að bera fram
- Skerið mangó og avókadó í litla bita. Saxið rauðlauk og kóríander og blandið öllu saman í skál ásamt límónusafanum.
- Kryddið kjötið með salti og pipar. Penslið með steikingarolíu og grillið á heitu grilli á báðum hliðum þar til það hefur náð þeirri eldun sem óskað er eftir.
- Látið kjötið hvíla í nokkrar mínútur áður en það er skorið í þunnar sneiðar þvert á vöðvaþræðina.
- Setjið mangósalsa og kjötsneiðar í litlar tortillur frá Broken Taco.
- Toppið með Broken Taco Green Sriracha og muldum fetaosti og berið fram.
Sjá uppskrift á Instagram.
Myndband og uppskrift eftir Tinnu Þorra.