Grilluð kjúklingataco með Broken Taco
mexican
Fyrir fjóra
- 600–700 g úrbeinuð kjúklingalæri
- 1 poki af mild kryddblöndu frá Broken Taco
- 1 msk. ólífuolía ásamt smá auka til að pensla tortillurnar
- 1 stór rauðlaukur
- 1 msk. smjör
- 2 avókadó
- 1 límóna
- Smátómatar
- Salat
- Ferskur kóríander
- 8–12 litlar tortillur frá Broken Taco
- Rjómaostur
- Rifinn cheddarostur
- Sósur að eigin vali
- Setjið kjúklingalærin í skál ásamt mild kryddblöndunni frá Broken Taco og ólífuolíu. Blandið vel saman og látið marinerast í að minnsta kosti 30 mínútur.
- Grillið kjúklinginn á vel heitu grilli í um 6–10 mínútur og snúið eftir 3–5 mínútur. Eldunartíminn fer eftir þykkt læranna og hita grillsins. Grillið þar til kjúklingurinn er fulleldaður og fallega gylltur. Skerið í þunnar sneiðar.
- Skerið rauðlaukinn í þunnar sneiðar og steikið upp úr smjöri við meðalhita þar til hann er mjúkur og sætur.
- Skerið avókadó og smátómata í bita og kreistið límónusafa yfir avókadóið. Saxið kóríander gróft og skerið salatið í ræmur.
- Penslið tortillurnar með smá ólífuolíu, smyrjið með rjómaosti og stráið rifnum cheddarosti yfir. Bakið við 180°C í 3–5 mínútur eða þar til osturinn er bráðnaður.
- Fyllið tortillurnar með salati, avókadó, tómötum, kjúklingi og smjörsteiktum rauðlauk. Toppið með sósum að eigin vali og ferskum kóríander. Berið fram strax.