Kaffikaka í jólabúning
kökur
Innihald
- 200 g sykur
- 150 g smjör
- 2 egg
- 160 g hveiti
- 1 bolli Lavazza ORO Gold kaffi
- 1 bolli mjólk
- 2 tsk. vanilludropar
- 1 tsk. lyftiduft
- ½ tsk natron
- ½ tsk. salt
Toppur
- 50 g smjör
- 50 g púðursykur
- 20 ml. mjólk
- 70 g pekanhnetur (gróft hakkaðar)
Aðferð
- Byrjið á því að hita ofninn í 180°C.
- Þeytið smjör og sykur saman þar til það er létt og ljóst.
- Bætið við eggjunum, einu og einu út í.
- Sigtið saman þurrefnin og bætið þeim við.
- Setjið síðan vanilludropa, mjólk og kaffi út í blönduna og blandið varlega saman.
- Ef deigið er of stíft, er hægt að setja meiri mjólk eða kaffi út í.
- Það virkar líka til að fá ennþá sterkara kaffibragð.
- Hellið deiginu í form og bakið í ofni við 180°C í 20 til 30 mínútur.
- Setjið síðan krönsið sem á að fara á toppinn ofan á á meðan kakan er enn þá heit.
- Setjið kökuna aftur inn í ofn í 3 mínútur.
- Takið út og skreytið að vild ef ykkur langar að setja hana í jólabúning.
- Berið kökuna fram með nýlögðuðu kaffi og njótið.