fljótleg leit

kökur

Deig

  • 410 g hveiti
  • 3 msk. sykur
  • 1 tsk. salt
  • 1 pakki ger
  • 1 dl vatn
  • 0,8 dl mjólk
  • 40 g smjör
  • 1 egg

Fylling

  • 4 msk. mjúkt smjör
  • 2 msk. kanill
  • 60 g sykur

Glassúr

  • 4 msk. flórsykur
  • 1½ msk. rjómi

Karamellusósa

  • 6 karamellur frá Walkers
  • 1–2 msk. rjómi
  1. Hitið ofninn í 200°C.
  2. Blandið saman hveiti, sykur, salti og geri
  3. Bræðið smjörið og blandið saman við vatn og mjólk. Passið að blandan verði ekki of heit.
  4. Hrærið smjörblöndunni saman við hveitiblönduna og bætið egginu við.
  5. Hnoðið þessu vel saman með höndunum eða í hrærivélinni þangað til að deigið hættir að vera klístrað.
  6. Smyrjið skál með olíu, látið deigið ofan í og leggið viskustykki yfir. Látið deigið hefast í skálinni á meðan þið gerð fyllinguna, í nokkrar mínútur.
  7. Hrærið saman í fyllinguna, smjör, kanil og sykur.
  8. Rúllið deiginu út á smjörpappír eða beint á borðið. Smyrjið fyllingunni yfir deigið, rúllið því upp og skerið í kringum 10-12 bita.
  9. Smyrjið eldfast form og raðið snúðunum í það þannig að það verði smá bil á milli þeirra.
  10. Slökkvið á ofninum þegar það eru ca. 10 mínútur þangað til þið setjið snúðana í hann. Setjið álpappír yfir formið og látið snúðana hefast í heitum ofninum í 20 mínútur.
  11. Takið álpappírinn af þeim og kveikið aftur á ofninum. Stillið á 180°C og bakið í 20-25 mínútur eða þar til snúðarnir eru orðnir fallegir og gylltir.

Walkers karamelluglassúr

  1. Bræðið karamellurnar og rjóma í potti. Kælið aðeins.
  2. Hrærið saman flórsykur og rjóma.
  3. Blandið bræddu karamellunum saman við flórsykurblönduna. Bætið flórsykur við ef þið viljið hafa glassúrinn þykkari.

Uppskrift eftir Hildi Rut.