fljótleg leit

mexican

Fyrir fjóra
  1. Skerið tómata og rauðlauk smátt og saxið kóríander. Setjið í skál, bætið límónusafa út í og smakkið til með salti og pipar.
  2. Kryddið kjúklinginn með medium kryddblöndunni frá Broken Taco og steikið upp úr smá olíu á pönnu þar til hann er fulleldaður. Skerið í bita.
  3. Setjið rifinn ost á annan helming hverrar tortillu, síðan kjúkling og smá meiri ost. Brjótið tortillurnar saman.
  4. Hitið olíu þannig að hún þeki botninn á pönnu. Steikið tortillurnar á báðum hliðum þar til þær eru gullinbrúnar og osturinn bráðnaður. Snúið þeim varlega svo heit olían skvettist ekki.
  5. Opnið tortillurnar varlega og fyllið með fersku salsanu og Broken Taco Chipotle Mayo. Berið fram strax.

Sjá uppskrift á TikTok og Instagram.

Myndband og uppskrift eftir Tinnu Þorra.