fljótleg leit

konfekt

22 stk

Macaron skeljar
Vatn 160 g
Marengsblanda 320 g (101963)
Möndlumjöl 260 g (960232)
Flórsykur, sigtaður 420 g (950031)
Gulur matarlitur 5 g

Macaron fylling
Hlutlaus frómas 200 g (101951)
Vatn 250ml
Rjómi 1000l
Appelsínupasta 35 g (101966)
Bláber, fersk 110 stk.

Skreyting
Odense hjúpsúkkulaði dökkt 10 g (100150)
Appelsínubörkur

LEIÐBEININGAR:
Hrærið maregnsblönduna saman og þeytið í 5 – 6 mínútur. Sigtið saman flórsykur og möndlumjöl og foldið það varlega saman við marengsblönduna, guli matarliturinn er svo bætt út í lokin. Blanda ætti að falla auðveldlega af skeiðinni þegar hún er tilbúin. Sprautið skeljarnar með með 9 mm stút (u.þ.b. 7 cm þvermál). Látið þorna að minnsta kosti í 1 klst og bakið í ofn við 150˚C í ca 24 mínútur
Blandið hlutlausa frómasduftinu saman við vatn, bætið við þeyttum rjóma og appelsínupasta og þeytið vel saman. Sprautið 5 punkta af kremi utan um brún hverrar makrónuskel og setjið bláber á milli. Fylltu miðjuna með rjóma og setjið seinni makkarónuskelina ofan á. Bræðið dökkat súkkulaði og sprautið yfir helmingin af makkarónunni, skreytið síðan með appelsínuberki.