Páskasúkkulaðimús
matvara
Fyrir 4
Innihald
- 200 g Dökkt súkkulaði
- 4 Egg
- 3 dl Rjómi
Aðferð
- Bræðið súkkulaðið í vatnsbaði.
- Skiljið eggin.
- Kælið brædda súkkulaðið aðeins, áður en þið bætið eggjarauðunum við.
- Æskilegt er að súkkulaðið sé ekki heitara en 60°C.
- Passið að blanda aðeins einni eggjarauðu í einu út í senn og hræra.
- Léttþeytið rjóma og blandið saman við.
- Stífþeytið eggjahvíturnar og blandið þeim síðan líka við.
- Deilið síðan músinni í 4 glös.
- Setjið í ísskáp yfir nótt áður en þið berið réttinn fram.
- Skreytið rétt áður en þið berið fram, sjá tillögu hér fyrir neðan.
Skraut
- 50 g Feuilletine (svipað og kornflex)
- 50 g Súkkulaði
- Smarties mini páskaegg, magn eftir smekk
Aðferð og samsetning
- Bræðið súkkulaði og bætið feuilletine við.
- Setjið ofan á kældu súkkulaðimúsina.
- Raðið síðan smarties páskaeggjunum á.
- Berið fram og njótið með ykkar allra bestu.