Súkkulaði smákökur fylltar með Walkers karamellum
kökur
- 150 g smjör
- 300 g hveiti
- ½ tsk matarsódi
- ½ tsk vanillusykur
- ¼ tsk sjávar salt
- 150 g ljós púðursykur
- 100 g sykur
- 1 egg
- 1 eggjarauða
- 2 msk nýmjólk
- 70 g brætt súkkulaði
- 70 g súkkulaði bitar
- 1 poki Walkers salt karamellur
- Bræðið smjörið og látið kólna lítillega.
- Blandið hveiti, matarsóda, vanillusykri og sjávarsalti saman í skál.
- Setjið sykur, púðursykur og brætt smjör í hrærivélaskál og hrærið vel saman.
- Bætið egginu, eggjarauðunni og mjólkinni út í og blandið vel.
- Bætið hveitiblöndunni smám saman út í og hrærið þar til deigið hefur samlagast.
- Bræðið 70 g af súkkulaði og blandið því létt saman við deigið. Hrærið aðeins svo deigið haldist tvílitt.
- Blandið súkkulaðibitunum saman við deigið.
- Hitið ofninn í 190°C.
- Takið 1 msk. af deigi, mótið kúlu og fletjið hana lítillega. Setjið eina karamellu í miðjuna og aðra matskeið af deigi yfir. Klemmið brúnirnar saman svo karamellan sé alveg hulin.
- Raðið kökunum á bökunarplötu klædda bökunarpappír og hafið um 5 cm á milli þeirra.
- Bakið í um 10 mínútur eða þar til kökurnar byrja að verða gullnar. Takið þær úr ofninum og færið varlega yfir á grind til að kólna.
Uppskrift eftir Lindu Ben.