Sweet 'n Spicy kjúklingataco með Broken Taco
mexican
Kjúklingur
- Kjúklingalæri
- Medium krydd frá Broken Taco
- Ólífuolía
Guacamole
- 2 avókadó
- Medium krydd frá Broken Taco
- Hvítlauksduft
- Límónusafi
- Salt
Tómatsalsa
- 3 tómatar
- ½ laukur
- Kóríander eftir smekk
- Hunang
- Límónusafi
Vefjur, meðlæti og sósur
- Litlar vefjur frá Broken Taco
- Chipotle Mayo frá Broken Taco
- Pineapple Rain frá Broken Taco
- Jalapeño Jazz frá Broken Taco
- Fetaostur
- Kryddið kjúklinginn. Setjið kjúklingalærin í skál með ólífuolíu og Medium kryddi frá Broken Taco. Blandið vel þannig að kryddið þeki kjúklinginn.
- Útbúið guacamole. Stappið avókadó með gaffli og kryddið með kryddi frá Broken Taco, hvítlauksdufti, límónusafa og salti eftir smekk.
- Útbúið tómatsalsa. Skerið tómatana og laukinn smátt og saxið kóríander. Blandið saman í skál og bætið hunangi og límónusafa út í eftir smekk.
- Eldið kjúklinginn þar til hann er fulleldaður. Skerið hann síðan í litla bita.
- Hitið vefjurnar stutt á pönnu.
- Setjið saman taco. Smyrjið guacamole á vefjurnar og bætið kjúklingi og tómatsalsa ofan á. Toppið með Pineapple Rain, Chipotle Mayo og Jalapeño Jazz frá Broken Taco. Myljið fetaost yfir og berið fram.
Sjá myndband á Instagram.
Uppskrift og myndband unnið af Sunnu Björk