Walkers karamellusósa
eftirréttir
- 15 Walker’s karamellur
- 1 dl rjómi
- Setjið karamellurnar og rjómann í pott. Hitið við vægan hita og hrærið þar til karamellurnar eru bráðnaðar og sósan er slétt. Látið ekki sjóða.
- Hellið sósunni í hreina krukku og látið kólna. Geymið í lokaðri krukku í ísskáp.