fljótleg leit

weetabix

Kalkúnabollur

  • 600 gr kalkúnahakk
  • 3 Weetabix-kubbar
  • 1 egg
  • 150 g kotasæla
  • Hvítlauksduft
  • Laukduft
  • Oregano
  • Salt & pipar

Sósa

  • 1 dós hakkaðir tómatar
  • Hvítlauksduft
  • Oregano
  • Salt & pipar
  • Smá hunang
  • Fersk basilika

Topping

  • Kotasæla
  • Parmesan
  • Weetabix crunch
  • Fersk basilika
  1. Setjið hakk, egg, kotasælu og krydd í skál. Myljið Weetabix út í og blandið vel saman.
  2. Mótið jafnstórar kjötbollur úr blöndunni.
  3. Hitið olíu á pönnu og brúnið kjötbollurnar á öllum hliðum. Takið þær af pönnunni og leggið til hliðar.
  4. Hellið hökkuðum tómötum á sömu pönnu og hrærið upp steikingarleifarnar. Setjið kjötbollurnar aftur á pönnuna og bætið kryddi, saxaðri basilíku og smá ólífuolíu út í.
  5. Setjið lok á pönnuna og látið malla við vægan hita þar til kjötbollurnar eru fulleldaðar.
  6. Setjið smá olíu á aðra pönnu, myljið Weetabix út á og ristið þar til það er gullið og stökkt.
  7. Setjið sósu og kjötbollur á disk. Toppið með kotasælu, rifnum parmesan, ristuðu Weetabix og ferskri basilíku.

Sjá myndband á TikTok eða Instagram.

Uppskrift og myndband unnið af Sunnu Björk