fljótleg leit

weetabix

  • 2 Weetabix með próteini
  • 10 g súkkulaðipróteinduft
  • 1 dl mjólk
  • 170 g vanilluskyr
  • 10 g hnetusmjör
  • 4 bitar suðusúkkulaði
  • 5 jarðarber

Myljið Weetabix í skál og hrærið saman við próteinduft og mjólk. Færið yfir í aðra skál og þjappið í botninn. Hrærið hnetusmjöri saman við skyrið og smyrjið yfir Weetabix-botninn.

Bræðið súkkulaði og látið renna af skeið yfir skyrið til að skreyta. Skerið jarðarber í sneiðar og raðið meðfram brún skálarinnar. Stráið muldu Weetabixi yfir. Kælið og njótið.

Sjá uppskrift á TikTok og Instagram.

Myndband og uppskrift unnin af Sunnu Björk.