fljótleg leit

yfirlit

Vöruskil

Upplýsingar um vöruskil

Þegar óskað er eftir vöruskilum er mikilvægt að fylgja eftirfarandi skrefum svo kredit og móttaka verði sem farsælust:

  1. Fá samþykki fyrir vöruskilum á söluhæfum vörum hjá tengiliði hjá Danól ehf.
  2. Fylla út vöruskilablöð (sjá hér að neðan) með öllum nauðsynlegum upplýsingum um vöruskilin (t.d. hvaðan varan kemur, ástæða vöruskila, vörunúmeri, vöruheiti og fjöldi).
  3. Prenta út og láta blaðið fylgja vörusendingunni. Vinsamlega sendið rafrænt eða afhendið vöruskilablaðið til tengiliðs hjá Danól til að fá uppgefið innsetningarnúmer sem er sett utan á kassann.
  4. Setja rétt heimilisfang á vöruskilin (Snyrti- og sérvara eða Matvara/Þurrvara).
  5. Senda vöruskil með Eimskip Innanlands eða í gegnum sölumann. Ef vöruskil eru send með öðrum flutningsaðilum mun beiðninni verða hafnað og vörunni fargað.

Söluhæf vara

  • Söluhæf vara er óopnuð, með umbúðir óslitnar og varan er heil að öllu leyti. Varist að endursenda vörur sem teljast ósöluhæfar, þar sem þær verða ekki bættar og ekki endursendar.
  • Ef vöru er skilað en hana vantar á skilareikning verður hún ekki bætt né endursend til viðskiptavinar óháð ástandi vöru.

Ósöluhæf vara

  • Kæli- og frystivara telst ósöluhæf vara þar sem ekki er hægt að tryggja gæði vörunnar eftir afhendingu.
  • Ósöluhæf vara eru allar þær vörur sem hafa verið opnaðar, eru með umbúðir rofnar, með umbúðir rispaðar, hafa beyglaðar pakkningar eða eru með límafganga eftir þjófavörn á sér. Athugið að sumar vörur koma í stærri sölueiningum, kössum og mikilvægt er að sölueiningin sé heil.
  • Vörur sem teljast ósöluhæfar verða ekki bættar eða endursendar til viðskiptavina.
  • Ef vara berst til viðskiptavina í ósöluhæfu ástandi, þarf að tilkynna það innan þriggja daga frá móttöku.  Við munum fara fram á að tekin verði mynd af vörunni ásamt ytri umbúðum og send á tengilið innan Danól. Tengiliður mun þá senda frekari upplýsingar um úrlausn tjónsins.

Útsöluvara – tímarammi

Ef útsöluvöru er skilað eftir að útgefnum tímaramma vöruskila er útrunninn, mun varan ekki vera bætt eða endursend til viðskiptavina.