fljótleg leit

Vinnustaðurinn

Danól

Lykillinn að velgengni fyrirtækja er fólginn í mannauði þeirra. Markmið Danól er því að hafa yfir að ráða vel menntuðu, hæfu og áhugasömu starfsfólki sem sameiginlega skapar metnaðarfullt og jákvætt vinnuumhverfi. Starfsfólk Danól stefnir samstíga í átt að framtíðarsýn fyrirtækisins, að verða fyrsta val viðskiptavina og neytenda. Fjölbreyttur bakgrunnur starfsmanna gerir vinnustaðinn skemmtilegan.

Danól er dótturfyrirtæki Ölgerðarinnar og starfar í samræmi við sömu gildi, og stefnu og móðurfélagið.

Starfsfólk

Fyrir starfsfólk

Jafnréttismál

Jafnréttisstefna er skuldbinding Danól um stöðugar umbætur í jafnréttismálum og fjölbreytileika. Horft er til ákvæða laga nr. 150/2020 um jafnan rétt kynjanna og laga nr. 86/2019 um bann við allri mismunun fólks á vinnumarkaði á grundvelli kynþáttar, þjóðernisuppruna, trúar, lífsskoðunar, fötlunar, efnahags, litarháttar, ætternis, skerðingar á starfsgetu, aldurs, kynhneigðar, kynvitundar, kyneinkenna eða kyntjáningar.

Kynntu þér jafnréttisstefnu Danól og Ölgerðarinnar.

Mannauðsstefna og gildi

Stjórnendur Danól vita að lykillinn að velgengni fyrirtækisins felst í mannauðnum. Markmið fyrirtækisins er því að hafa yfir að ráða vel menntuðu, hæfu og áhugasömu starfsfólki sem sameiginlega skapar metnaðarfullt og jákvætt vinnuumhverfi.

Kynntu þér mannauðsstefnu Danól og Ölgerðarinnar.

Fræðsla og þjálfun

Starfsfólkið í Danól er dýrmætasta auðlind fyrirtækisins. Það er mikið kappsatriði að starfsfólki líði vel við störf sín og að það vaxi og dafni í starfi. Því er séð til þess að starfsfólk njóti góðrar þjálfunar og að góður árangur í starfi skili sér í aukinni ábyrgð og umbun innan fyrirtækisins.

Fræðsluþörf innan fyrirtækisins er reglulega greind með rýnihópum og viðtölum innan Danól. Innan fyrirtækisins er boðið upp á öfluga rafræna fræðslu þar sem starfsfólk getur sótt fræðslu á þeim tíma og þeim hraða sem hentar hverjum og einum. Þar hefur starfsfólk yfirsýn yfir það sem er í boði og hvers konar fræðslu það hefur þegar sótt.

Þróun í starfi

Saga Danól spannar yfir 90 ár og hjá okkur eru starfsmenn sem hafa unnið hjá Danól í fjölda ára.  Verkefnin eru fjölbreytt og leggur Danól mikið upp úr því að leyfa starfsfólki sínu að vaxa í starfi.

Öflugt félagslíf

Danól og Ölgerðin er skemmtilegur vinnustaður sem býr yfir stórum hópi með víðtæka þekkingu og reynslu. Sameiginlegt starfsmannafélag Mjöður heldur uppi öflugu félagslífi og stendur fyrir fjölbreyttum uppákomum og fleira skemmtilegu. Starfsfólk finnur mörg tækifæri til að koma saman og gleðjast og má þar nefna, starfsmannadaginn JÁ-daginn, bjórdaginn J-daginn, árshátíð, Októberfest, Sumargleði og fleira.

Umsókn um starf

Langar þig að vera hluti af frábærum starfsmannahóp? Við hvetjum þig til að leggja inn umsókn um starf.