6. mars 2026
Lavazza hlýtur silfurverðlaun FÍT 2026
Samstarfsverkefni listakonunnar Maríu Guðjohnsen og ítalska kaffiframleiðandans Lavazza, Rætur og rennsli, hlaut silfurv ...
fljótleg leit
Vinnustaðurinn
Hafa samband
matvara
Frá og með 16. febrúar mun Danól hefja sölu og dreifingu á Look O Look sælgætinu hér á landi. Vörumerkið hefur verið til staðar í íslenskum verslunum um árabil og nýtur sterkrar stöðu í sælgætisflokknum.
Look O Look er í eigu Perfetti Van Melle, alþjóðlegs framleiðanda sem á meðal annars vörumerkin Smint, Chupa Chups, Fruittella og Mentos. Perfetti Van Melle hefur nú valið Danól sem nýjan dreifingaraðila Look O Look á Íslandi.
Look O Look er þekkt fyrir litríkar, skapandi og skemmtilegar sælgætisvörur þar sem leikgleði og upplifun eru í forgrunni. Í vörulínunni má finna bæði klassískt sælgæti og svokallaðar „fun candy“ vörur, svo sem nammi-pizzu, nammi-hamborgara og aðrar frumlegar útfærslur sem vekja athygli í hillum verslana. Vörumerkið býður upp á fjölbreytt úrval í mismunandi bragðtegundum og formum sem höfða til breiðs hóps neytenda.
Með Look O Look styrkir Danól enn frekar stöðu sína í sælgætisflokknum og bætir við spennandi vörumerki með sterka ímynd og góða markaðsfestu.