13. maí 2026
Schofrulade – ný og fersk upplifun með frosnum ávöxtum
Schofrulade sameinar safaríka frosna ávexti og silkimjúkt súkkulaði í einstakri bragðupplifun. Schofrulade hefur einnig ...
fljótleg leit
Vinnustaðurinn
Hafa samband
matvara
Schofrulade sameinar safaríka frosna ávexti og silkimjúkt súkkulaði í einstakri bragðupplifun. Schofrulade hefur einnig notið mikilla vinsælda á samfélagsmiðlum þar sem neytendur hafa deilt sínum uppáhalds leiðum til að njóta vörunnar. Varan hefur því fljótt orðið ein mest spennandi nýjungin í sínum flokki í Evrópu.
Varan býður upp á ferskt og skemmtilegt twist á frosna ávexti og hentar jafnt sem létt snakk, eftirréttur eða meðlæti við góðar samverustundir. Schofrulade er líka fullkomið sem topping á ís, kökur og aðra eftirrétti eða sem spennandi viðbót á ostabakkann.
Eftirfarandi tegundir verða fáanlegar í helstu matvöruverslunum:
Jarðaber með súkkulaði
Hindber með hvítu súkkulaði
Mangó með súkkulaði
Með blöndu af alvöru ávöxtum og hágæða súkkulaði býður Schofrulade upp á nýja leið til að njóta frosinna ávaxta – beint úr frystinum.