10. apríl 2026
BLOOM loksins komið til Íslands
Við kynnum með stolti Bloom í vöruval Danól. Bloom Nutrition vinnur að því að hjálpa fólki að blómstra og verða besta ú ...
fljótleg leit
Vinnustaðurinn
Hafa samband
stóreldhús
Gabríel Kristinn Bjarnason, matreiðslumaður hjá Danól og meðlimur í íslenska kokkalandsliðinu, náði frábærum árangri á Norðurlandamótinu í matreiðslu sem fram fór í Danmörku í gær. Þar landaði hann silfurverðlaunum eftir harða og spennandi keppni.
Árangur Gabríels er mikil viðurkenning á fagmennsku hans og metnaði, en keppnin er ein sú virtasta á Norðurlöndum innan matreiðslu. Þar koma saman fremstu matreiðslumenn svæðisins og keppa í krefjandi verkefnum þar sem bæði sköpunargleði og tæknileg færni ráða úrslitum.
Við hjá Danól erum afar stolt af þessum glæsilega árangri og óskum Gabríel innilega til hamingju með silfrið.