13. maí 2026
Schofrulade – ný og fersk upplifun með frosnum ávöxtum
Schofrulade sameinar safaríka frosna ávexti og silkimjúkt súkkulaði í einstakri bragðupplifun. Schofrulade hefur einnig ...
fljótleg leit
Vinnustaðurinn
Hafa samband
matvara
Danól, í samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur, hefur ákveðið að innkalla River hrísgrjón sem seld voru í Samkaupum með best fyrir merkingu “BF 02.06.2028.”
Ástæða innköllunar er að í einni lotu, sem aðeins fór í verslanir Samkaupa, fundust skordýraleifar. Óhætt er að neyta vörunnar og þetta á ekki við um River hrísgrjón sem seld eru í öðrum verslunum.
Vörumerki: River Rice
· Vörunúmer: 430055
· BF 02.06.2028
Heiti og heimilisfang fyrirtækis sem innkallar vöru: Danól, Fossháls 25, 110 Reykjavík.
Leiðbeiningar til neytenda
Neytendur sem eiga umrædda vöru eru beðnir um að neyta hennar ekki og farga en einnig er hægt að skilað vörum sem innköllunin tekur til, með því að senda mynd af pakkningunni með viðeigandi dagsetningu, ásamt upplýsingum um kaupanda á netfangið danol@danol.is. Danól harmar þau óþægindi sem innköllunin kann að valda.
Nánari upplýsingar um innköllun:
Danól, Fossháls 25, 110 Reykjavík
danol@danol. is, sími 595 8000