13. febrúar 2026
Kærleiksdrykkur Lavazza í boði á Valentínusardaginn
Á Valentínusardaginn ætlar Lavazza búðin í Hagkaup Smáralind að bjóða gestum upp á sérstakan Kærleiksdrykk – bleikan og ...
fljótleg leit
Vinnustaðurinn
Hafa samband
matvara
Á Valentínusardaginn ætlar Lavazza búðin í Hagkaup Smáralind að bjóða gestum upp á sérstakan Kærleiksdrykk – bleikan og rómantískan kaffibolla skreyttan hjörtum, útbúinn af baristum verslunarinnar.
„Hugmyndin er einföld – að gefa fólki tækifæri til að gera daginn aðeins rómantískari. Við vildum bjóða upp á eitthvað huggulegt sem fólk getur notið sjálft eða deilt með ástinni sinni,“ segir Anna Sigurrós Steinarsdóttir, vörumerkjastjóri Lavazza.
Lavazza opnaði í lok árs 2024 glæsilega sérverslun og kaffihús í Hagkaup Smáralind þar sem finna má allt úrval Lavazza-kaffis og fylgihluta. Verslunin hefur fengið afar góðar viðtökur og eru vinsælar vörur fljótar að hverfa úr hillum.
Anna er sjálf mikil kaffikona og segir morgunbollann vera heilaga stund í dagsins önn. „Það er eitthvað notalegt við að taka sér smá tíma áður en dagurinn hefst og njóta fyrsta bollans. Ég reyni að velja bollana mína vel – ég vil ekki sóa þeim í vont kaffi.“
Uppskrift að Kærleiksdrykk Lavazza
Innihald:
1 pumpa af vanillusírópi
20 ml jarðarberjasíróp
Einfaldur eða tvöfaldur espresso
Flóuð mjólk
Rjómi á toppinn
Aðferð:
Setjið síróp í glas eða bolla og hellið espresso yfir. Fyllið upp með flóaðri mjólk, setjið rjóma á toppinn og skreytið með súkkulaðihjörtum og örlitlu af jarðarberjasósu.