10. apríl 2026
BLOOM loksins komið til Íslands
Við kynnum með stolti Bloom í vöruval Danól. Bloom Nutrition vinnur að því að hjálpa fólki að blómstra og verða besta ú ...
fljótleg leit
Vinnustaðurinn
Hafa samband
matvara
Hin sívinsæla McCain súkkulaðikaka verður aftur á boðstólum í verslunum um allt land frá og með 1. apríl næstkomandi. Kakan hefur verið í miklu uppáhaldi hjá Íslendingum í áratugi en hefur verið ófáanleg um nokkurt skeið. Þrátt fyrir það hefur eftirspurn eftir kökunni haldist mikil og fjöldi fólks haft samband við þjónustuver Danól og einnig hafa reglulega skapast umræður á samfélagsmiðlum þar sem kallað er eftir því að kakan snúi aftur í verslanir.
McCain súkkulaðikakan kom fyrst á íslenskan markað fyrir rúmum þremur áratugum og naut fljótt mikilla vinsælda, enda standast fáar kökur henni snúning og hún er fljótleg lausn fyrir þá sem vilja bjóða upp á góða súkkulaðiköku án mikillar fyrirhafnar.
Við ákváðum að kanna áhuga verslana á að taka kökuna aftur inn í vöruúrvalið og viðbrögðin létu ekki á sér standa!
Það er okkur sannarlega ánægja að geta sagt frá því að McCain súkkulaðikakan mun snúa aftur í langflestar matvöruverslanir frá og með 1. apríl!