13. maí 2026
Schofrulade – ný og fersk upplifun með frosnum ávöxtum
Schofrulade sameinar safaríka frosna ávexti og silkimjúkt súkkulaði í einstakri bragðupplifun. Schofrulade hefur einnig ...
fljótleg leit
Vinnustaðurinn
Hafa samband
matvara
NICK’S og Pattra buðu glæsilegum hópi kvenna í bleikt padelpartý í Tennishöllinni fimmtudaginn 24. september. Padel, tónlist og góð stemning einkenndu viðburðinn, þar sem allt umhverfið var sett upp í litríkum anda NICK’S.
Pattra var gestgjafi dagsins og tók á móti gestum, en Dóra Júlía sá um tónlistina og hélt uppi stemningunni. Við fengum þjálfara frá Tennishöllinni sem stýrði leiknum og sá til þess að jafnt byrjendur sem reyndari padelspilarar gætu tekið þátt og notið sín.
Bleiki liturinn var í aðalhlutverki bæði innan vallar og utan. Gestir fengu að kynnast fjölbreyttu vöruúrvali NICK’S og tóku með sér veglega NICK’S-gjafapoka að viðburðinum loknum.
Viðburðurinn heppnaðist einstaklega vel og mikil gleði ríkti meðal gesta. Keppnisskapið lét aðeins á sér kræla, en fyrst og fremst snerist dagurinn um hreyfingu, skemmtun og góða samveru.
NICK’S er sænskt vörumerki sem býður upp á fjölbreytt úrval af sælgæti, próteinstykkjum og ís. Danól flytur NICK’S-vörurnar inn og sér um dreifingu þeirra hér á landi. Vörurnar fást í helstu matvöruverslunum landsins.