13. febrúar 2026
Kærleiksdrykkur Lavazza í boði á Valentínusardaginn
Á Valentínusardaginn ætlar Lavazza búðin í Hagkaup Smáralind að bjóða gestum upp á sérstakan Kærleiksdrykk – bleikan og ...
fljótleg leit
Vinnustaðurinn
Hafa samband
stóreldhús
Nýverið lauk afar vel heppnaðri vinnustofu þar sem erlendir sérfræðingar í bakstri kynntu bakaranemum við Menntaskólann í Kópavogi nýjustu strauma, tækni og hráefni í greininni. Vinnustofan var haldin að frumkvæði Danól í samstarfi við þýsku fyrirtækin Ireks og Dreidoppel.
Konditormeistarar og sérfræðingar leiddu nemendur í gegnum fjölbreyttar æfingar þar sem lögð var áhersla á þróun nýrra bragðtegunda, nútímalegar útfærslur á kökum og brauðmeti og notkun nýrra aðferða til að bæta gæði og útlit bakarívara.
„Að fá slíka sérfræðinga til okkar er einstakt tækifæri fyrir nemendur að læra af þeim bestu í greininni. Tengsl við alþjóðlega markaði og nýjustu strauma skipta miklu máli fyrir framtíð þeirra í faginu,“ segir Daníel Helgi Rúnarsson, vörumerkjastjóri hjá Danól.
Nemendur tóku virkan þátt í námskeiðinu og sýndu mikinn áhuga og metnað. Að lokinni vinnustofunni komu gestir í heimsókn til að skoða afraksturinn og ræða við sérfræðingana.
„Stemningin var létt og lærdómsrík og verkefnið undirstrikar hversu mikilvæg samvinna skóla og atvinnulífs er fyrir faglega þróun nemenda,“ segir Árni Þorvarðarson hjá bakaradeild Menntaskólans í Kópavogi.
Meðal sérfræðinga voru Rene Kristoffersen og Trine Tofte hjá Ireks og Dreidoppel. Ireks er alþjóðlegt fjölskyldufyrirtæki sem framleiðir hágæða bakstursefni og starfar í yfir 90 löndum, en Dreidoppel sérhæfir sig í þróun bragðefna fyrir bakstur og sætabrauð.
Danól leggur ríka áherslu á fræðslu og faglega þróun í bakaraiðninni og mun áfram standa fyrir námskeiðum og vinnustofum sem styðja við næstu kynslóð bakara.