10. apríl 2026
BLOOM loksins komið til Íslands
Við kynnum með stolti Bloom í vöruval Danól. Bloom Nutrition vinnur að því að hjálpa fólki að blómstra og verða besta ú ...
fljótleg leit
Vinnustaðurinn
Hafa samband
snyrtivara
Beautyklúbburinn og Hagkaup héldu sitt árlega fermingarkvöld þann 25. febrúar en þetta var í fjórða sinn sem viðburðurinn er haldinn. Kvöldið hefur á stuttum tíma fest sig í sessi sem skemmtilegur og fræðandi viðburður fyrir fermingarbörn og aðstandendur þeirra.
Hápunktur kvöldsins var án efa förðunar- og húðumhirðufræðsla með förðunarfræðingnum Lilju Gísladóttur, sem fór yfir helstu grunnatriði þegar kemur að húðumhirðu fyrir ungt fólk. Kvöldið var í boði Hagkaups og Beautyklúbbsins, sem saman leggja mikla áherslu á að miðla áreiðanlegum og gagnlegum upplýsingum.
,,Við teljum það skyldu okkar að upplýsa þennan unga hóp um húðumhirðu og ýmislegt sem tengist snyrtivörum á þessum aldri þar sem þau eru að prófa sig áfram með nýjar vörur. Ég byrja fræðsluna alltaf á að taka það fram að húð hefur áferð og bólur eru fullkomlega eðlilegar og bæði áferð og bólur mega sjást. Það er vissulega hægt að hylja, en það er alls ekki nauðsynlegt, þetta snýst allt bara um að okkur sjálfum líði vel” segir Lilja.