Persónuverndarstefna
Persónuverndarstefna Danól ehf.
Danól ehf. (einnig vísað til „félagsins“ og „okkar“) hefur einsett sér að tryggja áreiðanleika, trúnað og öryggi persónuupplýsinga sem unnið er með innan félagsins. Persónuverndarstefna þessi nær til persónuupplýsinga er varða einstaklinga sem eru í viðskiptum við félagið, verktaka, tengiliði sem koma fram fyrir hönd lögaðila í viðskiptum við félagið, neytendur sem hafa samband við félagið, tengiliði birgja félagsins sem og aðra tengiliði (hér eftir sameiginlega vísað til „þín“).
Persónuverndarstefnu þessari er ætlað að upplýsa þig um hvaða persónuupplýsingum félagið safnar, með hvaða hætti félagið nýtir slíkar persónuupplýsingar og hverjir fá aðgang að upplýsingunum.
Ef þú ert í vafa um það hvernig stefna þessi varðar þig, vinsamlega hafðu samband við upplýsingatæknistjóra Ölgerðarinnar sem er vinnsluaðili fyrir Danól eða sendu tölvupóst á personuvernd@olgerdin.is fyrir frekari upplýsingar.
1. Tilgangur og lagaskylda
Danól leitast við að uppfylla í hvívetna persónuverndarlöggjöf og er stefna þessi byggð á lögum nr. 90/2018 um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga („persónuverndarlög“), með síðari breytingum.
2. Hvað eru persónuupplýsingar?
Persónuupplýsingar í skilningi stefnu þessarar eru hvers kyns upplýsingar um persónugreindan eða persónugreinanlegan einstakling, þ.e. upplýsingar sem hægt er að rekja beint eða óbeint til ákveðins einstaklings. Gögn sem eru ópersónugreinanleg teljast ekki persónuupplýsingar.
3. Persónuupplýsingar sem Danól vinnur um viðskiptavini
Við söfnum og varðveitum ýmsar persónuupplýsingar um viðskiptavini okkar. Ólíkum persónuupplýsingum kann að vera safnað um þig eftir því hvort þú sért sjálf/ur í viðskiptum við félagið eða hvort þú komir fram fyrir hönd lögaðila í viðskiptum við félagið.
Eftirfarandi eru dæmi um upplýsingar sem Danól vinnur um einstaklinga í viðskiptum við félagið:
- samskiptaupplýsingar, svo sem nafn, símanúmer og netfang;
- kennitala;
- upplýsingar um lánshæfi;
- upplýsingar úr samskiptum;
- reikningsupplýsingar;
- viðskiptasamningar; og
- upplýsingar vegna innheimtuaðgerða.
Eftirfarandi eru dæmi um upplýsingar sem Danól vinnur um einstaklinga sem koma fram fyrir hönd lögaðila í viðskiptum við félagið:
- samskiptaupplýsingar, svo sem nafn, símanúmer og netfang;
- samskiptasaga;
- upplýsingar vegna sjálfskuldarábyrgðar; og
- upplýsingar um lánshæfi prókúruhafa.
Auk framangreindra upplýsinga kann Danól einnig að safna og vinna aðrar upplýsingar sem viðskiptavinir eða forsvarsmenn/tengiliðir viðskiptavinar láta félaginu sjálfir í té sem og upplýsingar sem eru félaginu nauðsynlegar vegna starfsemi þess. Upplýsingarnar eru unnar fyrst og fremst til að geta efnt samninga við viðskiptavini félagsins, en einnig á grundvelli lögmætra hagsmuna okkar af því að tryggja að viðskiptavinir félagsins fái góða þjónustu, s.s. með rannsókn á kvörtunum.
Að meginstefnu til aflar Danól persónuupplýsinga beint frá viðskiptavini eða tengilið hans. Upplýsingar kunna þó jafnframt að koma frá þriðju aðilum, s.s. Credit Info í þeim tilfellum þar sem einstaklingur óskar eftir að vera í reikningsviðskiptum við félagið. Sé persónuupplýsinga aflað frá þriðja aðila í öðrum tilvikum mun félagið leitast við að upplýsa viðskiptavini sína um slíkt.
Upplýsingar um viðskiptavini og forsvarsmenn/tengiliði viðskiptavina eru varðveittar í 4 ár frá lokum viðskipta. Sé um að ræða upplýsingar sem falla undir bókhaldslög eru þær varðveittar í 7 ár frá lokum viðkomandi reikningsárs. Upplýsingar úr kvörtunum viðskiptavina kann að vera nauðsynlegt að varðveita lengur, t.d. ef kvörtunin gefur til kynna að heilsutjón hafi orðið.
4. Persónuupplýsingar sem Danól vinnur um þá sem sækja námskeið
Við skráningu á námskeið óskum við eftir upplýsingum frá þér um nafn og tengiliðaupplýsingar í þeim tilgangi að halda utan um skráningu.
Upplýsingarnar eru unnar annars vegar á grundvelli samnings þíns við Ölgerðina um þátttökuá námskeiði, en hins vegar á grundvelli samþykkis.
Upplýsingar um nafn og tengiliðaupplýsingar eru ekki varðveittar lengur en í 4 ár frá því að námskeið átti sér stað. Netföng eru varðveitt á póstlista þar til samþykki er dregið tilbaka. Þér er ávallt heimilt að afturkalla samþykki þitt.
5. Persónuupplýsingar sem Danól vinnur um tengiliði birgja
Vinnsla persónuupplýsinga um tengiliði birgja kann að vera nauðsynleg til að efna samning félagsins við viðkomandi birgja, en félagið hefur einnig lögmæta hagsmuni af slíkri vinnslu í þeim tilgangi að einfalda samskipti og bæta samstarf við birgja. Upplýsingarnar sem um ræðir eru eftirfarandi:
- samskiptaupplýsingar, svo sem nafn, símanúmer og netfang;
- starfsheiti; og
- upplýsingar úr samskiptum.
Auk framangreindra upplýsinga kann Danól einnig að safna og vinna aðrar upplýsingar sem tengiliðir láta félaginu sjálfir í té. Upplýsingarnar koma að meginstefnu til beint frá tengiliði, en þær kunna jafnframt að koma frá sjálfum birgjanum.
Upplýsingum um tengiliði er eytt eða þeim breytt þegar félagið fær vitneskju um að breytingar hafa orðið á tengiliðaupplýsingum. Framangreindar upplýsingar eru ekki varðveittar lengur en í 4 ár frá lokum samnings milli félagsins og birgja, nema um sé að ræða upplýsingar sem falla undir gildissvið bókhalds- og tollalaga.
6. Persónuupplýsingar sem Danól vinnur um verktaka
Við söfnum persónuupplýsingum um verktaka sem starfa fyrir félagið en vinnsla upplýsinganna kann að fara eftir eðli þeirra verkefna sem viðkomandi sinnir fyrir félagið.
Eftirfarandi eru dæmi um upplýsingar sem Danól kann að safna um þig sem verktaka, svo félagið geti uppfyllt skyldur sínar á grundvelli verktakasamnings:
- samskiptaupplýsingar, svo sem nafn, kennitala, netfang og símanúmer;
- upplýsingar um menntun, þjálfun og reynslu; og
- reikningsupplýsingar.
Auk framangreindra upplýsinga kann Danól einnig að safna og vinna aðrar upplýsingar sem verktakar láta félaginu sjálfir í té sem og upplýsingar sem eru félaginu nauðsynlegar vegna starfsemi þess, s.s. upplýsingar úr öryggiskerfum í húsnæði Danól.
Ef þú starfar fyrir félagið sem áhrifavaldur vinnur félagið jafnframt með persónuupplýsingar af samfélagsmiðlum þínum og framkvæmir frammistöðumat í kjölfar herferðar á grundvelli lögmætra hagsmuna félagsins.
Upplýsingarnar koma að meginstefnu til beint frá þér, en þær kunna jafnframt að koma frá þriðja aðila, s.s. frá ráðgjafafyrirtækjum sem greina árangur herferða á samfélagsmiðlum. Félagið kann einnig að miðla persónuupplýsingum til sambærilegra ráðgjafafyrirtækja í þeim tilgangi að greina árangur samstarfs.
Upplýsingar um verktaka eru ekki varðveittar lengur en í 4 ár frá lokum verkefnis, nema um sé að ræða upplýsingar sem falla undir bókhaldslög og eru upplýsingar þá varðveittar í 7 ár frá lokum viðkomandi reikningsárs. Kjósi félagið að varðveita upplýsingar lengur um þá verktaka sem starfað hafa fyrir félagið er óskað eftir samþykki fyrir þeirri varðveislu.
7. Persónuupplýsingar sem Danól vinnur um neytendur
Danól berast ýmsar fyrirspurnir og ábendingar frá neytendum, s.s. með tölvupósti og í gegnum Facebook síðu félagsins, sem innihalda persónuupplýsingar. Sendir þú ábendingu eða kvörtun til félagsins kunnum við að hafa lögmæta hagsmuni af því að varðveita tengiliðaupplýsingar þínar, s.s. nafn, símanúmer og netfang til að fylgja erindi þínu eftir og eftir atvikum bæta tjón eða galla á vöru.
Upplýsingar sem berast félaginu frá neytendum eru ekki varðveittar hjá félaginu lengur en í 4 ár frá því að erindið berst, nema ef erindið gefur til kynna að heilsutjón hafi orðið, en er þá tilefni til lengri varðveislu.
8. Persónuupplýsingar sem Danól vinnur um aðra tengiliði
Í starfsemi sinni safnar félagið jafnframt samskiptaupplýsingum ýmissa tengiliða, s.s. hjá þeim stofnunum og yfirvöldum sem félagið er í reglulegum samskiptum við. Er það gert á grundvelli lögmætra hagsmuna félagsins af því að einfalda samskipti, en upplýsingarnar eru uppfærðar og þeim eytt eftir því sem þörf er á hverju sinni.
9. Rafræn vöktun í húsnæði Danól
Í öryggis- og eignavörsluskyni og á grundvelli lögmætra hagsmuna Danól er notast við hreyfiskynjara og eftirlitsmyndavélar.
Hafir þú, t.d. sem verktaki, aðgang að aðgangsstýrðum rýmum í húsnæði félagsins kann upplýsingum um ferðir þínar um húsnæðið einnig að vera safnað, í öryggis- og eignavörsluskyni.
10. Miðlun til þriðju aðila
Danól kann að miðla persónuupplýsingum þínum til þriðju aðila í tengslum við samningssamband þeirra við félagið. Sem dæmi kann upplýsingum um þig að vera miðlað til ráðgjafafyrirtækja vegna þjónustukönnunar, til innheimtuaðila vegna innheimtu skulda og til flutningsaðila vegna dreifingar á vöru.
Persónuupplýsingar þínar kunna jafnframt að vera afhentar þriðja aðila að því marki sem heimilað er eða krafist er á grundvelli viðeigandi laga eða reglna, s.s. til Tollstjóra og Ríkisskattstjóra vegna eftirlitshlutverks þeirra með áfengisframleiðslu- og innflutningi.
Einnig gæti persónuupplýsingum verið miðlað til þriðju aðila sem veita okkur upplýsingatækniþjónustu og aðra þjónustu sem tengist vinnslu og er hluti af rekstri félagsins. Þessir aðilar kunna að vera staðsettir utan Íslands. Danól mun þó ekki miðla persónuupplýsingum utan Evrópska efnahagssvæðisins nema slíkt sé heimilt á grundvelli viðeigandi persónuverndarlöggjafar, s.s. á grundvelli staðlaðra samningsskilmála, samþykki þíns eða auglýsingar Persónuverndar um ríki sem veita persónuupplýsingum fullnægjandi vernd.
Að lokum gætu persónuupplýsingar um þig verið afhentar að því marki sem heimilað er eða krafist er á grundvelli viðeigandi laga eða reglna eða til að bregðast við löglegum aðgerðum eins og húsleitum, stefnum eða dómsúrskurði.
11. Hvernig er öryggi persónuupplýsinga tryggt?
Danól leitast við að grípa til viðeigandi tæknilegra og skipulegra ráðstafana til að vernda persónuupplýsingar með sérstöku tilliti til eðlis þeirra. Þessum ráðstöfunum er ætlað að vernda persónuupplýsingar gegn því að þær glatist eða breytist fyrir slysni og gegn óleyfilegum aðgangi, afritun, notkun eða miðlun þeirra. Dæmi um öryggisráðstafanir sem Danól grípur til eru aðgangsstýringar í kerfum félagsins.
12. Breytingar og leiðréttingar á persónuupplýsingum
Það er mikilvægt að þær persónuupplýsingar sem Danól vinnur með séu bæði réttar og viðeigandi. Því er mikilvægt að félaginu sé tilkynnt um allar breytingar sem kunna að verða á persónuupplýsingum þínum.
Þú átt rétt á því að óáreiðanlegar persónuupplýsingar um þig séu leiðréttar. Að teknu tilliti til tilgangs vinnslu persónuupplýsinga átt þú jafnframt rétt á að láta fullgera ófullkomnar persónuupplýsingar um þig, þ.m.t. með því að leggja fram frekari upplýsingar.
Vinsamlega beindu öllum uppfærslum að upplýsingatæknistjóra hjá Ölgerðinni sem er vinnsluaðili fyrir Danól hjá Ölgerðinni eða sendu tölvupóst á personuvernd@olgerdin.is.
13. Réttindi þín hvað varðar þær persónuupplýsingar sem félagið vinnur
Þú átt rétt á að fá staðfest hvort við vinnum persónuupplýsingar um þig eða ekki, og ef svo er getur þú óskað eftir aðgangi að upplýsingunum og hvernig vinnslunni er hagað. Þá kann einnig að vera að þú hafir rétt á að fá afrit af upplýsingunum. Við ákveðnar aðstæður getur þú farið fram á það við félagið að við sendum upplýsingar, sem þú hefur sjálf/ur látið okkur í té eða stafa frá þér, beint til þriðja aðila.
Við ákveðnar aðstæður getur þú óskað eftir því að persónuupplýsingum um þig verði eytt án tafar, til að mynda þegar að varðveisla upplýsinganna er ekki lengur nauðsynleg miðað við tilgang vinnslunnar eða vegna þess að þú hefur afturkallað samþykki þitt fyrir vinnslu persónuupplýsinganna og engin önnur heimild liggur til grundvallar henni.
Viljir þú ekki láta eyða upplýsingum þínum, t.d. vegna þess að þú þarft á þeim að halda til að verjast kröfu, en vilt samt sem áður að þær séu ekki unnar frekar af hálfu félagsins getur þú óskað eftir því að vinnsla þeirra verði takmörkuð.
Sé vinnsla á persónuupplýsingum þínum byggð á lögmætum hagsmunum félagsins átt þú einnig rétt á að mótmæla þeirri vinnslu.
Framangreind réttindi þín eru þó ekki fortakslaus. Þannig kunna lög að skylda félagið til að hafna ósk um eyðingu eða aðgang að gögnum. Þá getur félagið hafnað beiðni þinni vegna réttinda félagsins, s.s. á grundvelli hugverkaréttar, eða réttinda annarra aðila, s.s. til friðhelgi einkalífs, telji félagið þau réttindi vega þyngra.
Ef upp koma aðstæður þar sem að félagið getur ekki orðið við beiðni þinni mun félagið leitast við að útskýra hvers vegna beiðninni hefur verið hafnað, þó með tilliti til takmarkana á grundvelli lagaskyldu.
14. Fyrirspurnir og kvörtun til Persónuverndar
Ef þú vilt nýta þér þau réttindi sem lýst er í 13. gr. í stefnu þessari, eða ef þú hefur einhverjar spurningar varðandi persónuverndarstefnu þessa eða það hvernig félagið vinnur með persónuupplýsingar þínar, vinsamlegast hafðu samband við upplýsingatæknistjóra hjá Ölgerðinni sem er vinnsluaðili fyrir Danól eða sendu tölvupóst á personuvernd@olgerdin.is.
Ef að þú ert ósátt/ur við vinnslu félagsins á persónuupplýsingum getur þú sent erindi til Persónuverndar (www.personuvernd.is).
15. Samskiptaupplýsingar
Við höfum tilnefnt upplýsingatæknistjóra Ölgerðarinnar sem er vinnsluaðili fyrir Danól til að hafa umsjón með eftirfylgni þessarar persónuverndarstefnu.
Samskiptaupplýsingar um félagið:
Danól ehf.
Fossháls 25
110 Reykjavík
16. Endurskoðun
Danól getur frá einum tíma til annars breytt persónuverndarstefnu þessari í samræmi við breytingar á viðeigandi lögum eða reglugerðum eða vegna breytinga á því hvernig félagið vinnur með persónuupplýsingar.
Allar breytingar sem kunna að verða gerðar á stefnunni taka gildi eftir að uppfærð útgáfa hefur verið birt á heimasíðu félagsins.
Þessi persónuverndarstefna var sett þann [03.07.18].