Vafrakökustefna

Vefsíða Danól notar vafrakökur (e. cookies) til að tryggja sem bestu upplifun af síðunni fyrir notendur. 

 

Stefnu þessari er ætlað að upplýsa notendur um það hvað vafrakaka er, hvernig félagið notar vafrakökur og hvernig þú getur stjórnað notkun á vafrakökum. 


 

1. Hvað er vafrakaka?

Vafrakökur eru  litlar textaskrár sem vefsvæðið getur sett inn á tölvuna þína eða önnur snjalltæki þegar vefsíða Danól er heimsótt. Vafrakökur gera vefsvæðum kleift að þekkja tölvur notenda og því er vafrakaka eins konar stafrænt merki sem man hvar þú hefur verið á netinu. 

 

Gerður er greinarmunur á setukökum og viðvarandi vafrakökum. Setukökur gera vefsvæðinu kleift að tengjast aðgerðum notanda á meðan hann er á vefsvæðinu. Setukökur eyðast almennt þegar notandi fer af vefsvæðinu og eru því ekki vistaðar til lengri tíma. Viðvarandi vafrakökur vistast á tölvu notanda og muna þannig val eða aðgerðir notenda á vefsvæðinu. Danól notast bæði við setukökur og viðvarandi vafrakökur.

 

Þá er vafrakökur ýmist fyrstu aðila kökur eða þriðju aðila kökur. Það ræðst af léni vefsvæðisins sem gerir vafrakökuna hvort hún telst fyrsta- eða þriðja aðila vafrakaka. Fyrstu aðila vafrakökur eru í grundvallaratriðum vafrakökur sem verða til á því vefsvæði sem notandi heimsækir. Þriðju aðila vafrakökur eru þær vafrakökur sem verða til á öðru léni en því sem notandi heimsækir. 

 

Frekari upplýsingar um vafrakökur má finna á eftirfarandi vefsíðu um vafrakökur: www.allaboutcookies.org.  
 

 

2. Vafrakökur sem Danól notar á vefsíðu sinni

Danól notast við eftirfarandi vafrakökur á vefsíðu sinni, www.danol.is, í eftirfarandi tilgangi:

Tölfræðikökur (e. statistics): Tölfræðikökur eru notaðar til að greina umferð og notkun í gegnum síðuna. [11.6.18] 

Markaðskökur (e. marketing): Engar kökur eru notaðar til að bjóða upp á sérsniðnar auglýsingar. Danól safnar engum upplýsingum í markaðslegum tilgangi. [11.6.18]   

 

Í netverslun Danól er auk þess notast við eftirfarandi vafrakökur:

Nauðsynlegar kökur (e. necsessary): Eru ómissandi til að vefsíðan virki eins og ætlast er til.  [11.6.18]

Valkostakökur (e. preference): [11.6.18]

 

Félagið notast m.a. við kökur frá Google Analytics og í gegnum þær kökur hefur Google aðgang að þeim upplýsingum sem kökurnar safna, þ.á m. IP tölum notenda. Google kemur þannig fram sem vinnsluaðili fyrir hönd Danól í skilningi persónuverndarlaga. 

 

Á vefsvæði Danól eru einnig þriðja aðila kökur.
 

 

3. Grundvöllur vinnslu – hvernig hægt er að slökkva á kökum 

Vinnsla þeirra persónuupplýsinga sem safnast með nauðsynlegum kökum er byggð á lögmætum hagsmunum Danól, endar virkja þær kökur eiginleika sem verða að vera til staðar til að hægt sé að nota vefsvæðið eins og til er ætlast.

 

Vinnsla þeirra persónuupplýsinga sem safnast með notkun á öðrum vafrakökum er hins vegar byggð á samþykki þínu. Þegar þú heimsækir vefsvæðið í fyrsta skipti birtist borði þar sem þú ert beðin/n um að samþykkja þær vafrakökur sem félagið notast við.

 

Þú getur hvenær sem er afturkallað þetta samþykki þitt með því að loka á kökur á vefsíðunni eða eyða þeim úr vafra þínum. Það kann hins vegar að hamla virkni síðunnar að einhverju leyti.

 

Það er mismunandi milli netvafra hvernig breyta á vefkökum, en nánari upplýsingar má nálgast á eftirfarandi tenglum:

 

 

Notir þú aðra vafra ættir þú að geta fundið upplýsingar um stillingar á vafrakökum á vefsíðu vafrans. 

 

Þá er hægt að slökkva á notkun á vafrakökum Google Analytics með því að ýta á þennan tengil: https://tools.google.com/dlpage/gaoptout. 
 

 

4. Varðveislutími vefkaka

Flestar af vafrakökum þeim sem Danól notar eru setukökur en þær eyðast þegar notandi fer af vefsvæðinu.
 

 

5. Nánari upplýsingar um persónuvernd – uppfærslur 

Félagið getur frá einum tíma til annars breytt stefnu þessari í samræmi við breytingar á viðeigandi lögum eða vegna breytinga á því hvernig félagið notast við vefkökur. 

 

Nánari upplýsingar um meðferð á persónuupplýsingum má finna í persónuverndarstefnu félagsins.

 

Fyrirtækið framfylgir og viðheldur gæðaímynd sinni í samstarfi við þessi vöruhús en einnig leggur fyrirtækið metnað sinn í að tryggja að: 

 

  • Vörur okkar séu úr úrvals hráefni og gæðum ekki fórnað.
  • Vörumeðhöndlun sé örugg og í samræmi við bestu þekktar aðferðir á hverjum tíma. 
  • Við leggjum upp með að samskipti og þjónusta okkar til viðskiptavina fari fram úr væntingum. 
  • Að starfsemi okkar sé í samræmi við lög og reglugerðir og að við uppfyllum þær kröfur sem gerðar eru til okkar af viðskiptavinum og hagsmunaaðilum.
  • Að alltaf sé leitað leiða til umbóta, því við lærum af mistökum og þjálfum hugsun án takmarkana

 

 

Stefnur og gæðamarkmið fyrirtækisins eru yfirfarin að minnsta kosti árlega.

 

Framkvæmdastjóri tryggir að yfirferðin fari fram.