Danól er ein fremsta heildsala landsins með mat- og sérvörur fyrir stórmarkaði og verslanir. Allt frá upphafi hefur verið lögð mikil rækt við að tryggja að þau vörumerki sem hafa verið tekin inn til sölu, séu þau fremstu á sínu sviði. Mikil áhersla er lögð á að framleiðendur uppfylli allar reglur varðandi framleiðsluferli og matvælaöryggi.
Mörg af okkar vörumerkjum hafa verið hluti af Danól í áratugi. Matvörusvið Danól hefur á að skipa vörumerkjum á borð við Merrild, Dolce Gusto, Haribo, LavAzza, Quality Street, McCain, Felix, Lambi, NAN, Weetos, Sigdal, Maryland, Homeblest, Ballerina, Hatting, Kit-Kat, Anamma, Goodfellas, FruitFunk, Haust, Fun Light, Milt, Nesquik, Mentos, Weetabix, Daloon, Odense, Den Gamle Fabrik og svo mætti lengi telja. Í heildina eru um 70-80 vörumerki innan okkar raða.
Við erum sífellt að leita af nýjum vörumerkjum og vörum sem uppfylla þarfir okkar viðskiptavina og neytenda.