Danól er ein stærsta heildsala landsins á snyrti- og sérvörumarkaði. Snyrti- og sérvörudeild Danól hefur umboð með vörumerkjum sem eru þekkt fyrir framúrskarandi gæði, mikla vöruþróun og góða virkni.
Mörg af vörumerkjum okkar hafa verið hluti af Danól til margra ára. Sérvörusvið Danól hefur á að skipa vörumerkjum á borð við L’Oréal Paris, Maybelline, NYX Professional Makeup, Essie, Garnier, Elnett, Elvital, Vichy, CeraVe, La Roche-Posay, Bondi Sands, Neutrogena, Carefree, o.b., Johnson&Johnson, Dr. Teal’s, Real Techniques og Eylure
Snyrti- og sérvara hefur einnig umboð fyrir sokkabuxur og fatnað frá Oroblu, ásamt því að vera með umboð fyrir kertum og servíettum frá Duni.